Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Guðný Guðjónsdóttir
  • Staður: Selfoss

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Innskráningar kubbur

Atburðarteljari

Undirsíðukubbur

Jááá

30. október 2007 klukkan 21:55

Kannist þið við það þegar maður á að vera að læra þá dettur manni í hug að gera ótrúlegustu hlutiSkömmustulegur
Nú á ég til dæmis að vera að læra undir tvö próf sem eru á morgun, og það frekar erfið próf..en það gengur ekkert.

Allt í einu finnst manni allir þættir sem eru í sjónvarpinu svakalega spennandi. Og það er alveg sama hvað það er. Manni meira að segja dettur í hug að ryksuga þótt maður hafi gert það í fyrradagBrosandi Jamm lærómurinn situr á hakanum.

Svo var ég að uppgötva það að það er bara mánuður í jólapróf. Ég væri sko ekkert á móti því að fá 20 daga í viðbót við það, en það er víst ekki hægt.. þannig að ég verð að fara að spýta í lófana og hætta þessu endalausa slóri..

En já það var vetrarfrí hjá mér síðustu helgi. En ég eyddi helginni í vinnu. Gott að fá smá peningGráðugur

Já efast um að nokkur nenni að lesa þetta.. BORING.. Guðný farðu að LÆRA!!!!!!!!!Fýldur

Hahaha.. snilld :)

26. október 2007 klukkan 15:22

Þekkir þú fínar dömur og alvöru konur í sundur?

Fínar dömur: Ef þú hefur ofsaltað matinn sem þú ert að elda, þá skaltu setja kartöflu í pottinn. Hún dregur saltið í sig.
Alvöru konur: Ef þú ofsaltaðir matinn er það bara assgoti pirrandi.


Fínar dömur: Það er auðvelt að lækna höfuðverk með því að skera límónu í sundur og nudda henni á ennið.
Alvöru konur: Taktu límónu og blandaðu henni við tekíla og salt og drekktu. Höfuðverkurinn hverfur sennilega ekki, en þér verður alveg sama.


Fínar dömur: Ef þú setur sykurpúða í botninn á vöffluformi, þá lekur ísinn ekki í gegnum það.

Alvöru konur: Sjúgðu bara ísinn úr vöffluforminu. Þú liggur hvort eð er örugglega með fæturna upp í loft í sófanum og borðar hann.

Fínar dömur: Þú getur komið í veg fyrir að kartöflur spíri með því að setja epli í pokann með þeim.

Alvöru konur: Kauptu karföflumúspakka, hann geymist í heilt ár í eldhússkápnum.


Fínar dömur: Kökur fá jafna, slétta áferð ef þú penslar þær með eggjahvítu áður en þær fara í ofninn.
Alvöru konur: Betty Crocker segir ekkert til um penslun á kökunni. Slepptu þessu bara.

Fínar dömur: Ef þú átt erfitt með að opna sultukrukku er gott að setja á sig gúmmíhanska. Þannig færðu betra grip.  
Alvöru konur: Biddu myndarlega, ríka og einhleypa nágrannann um að opna krukkuna!  

Fínar dömur: Ekki hella afgangs rauðvíni. Það má frysta í ísmolabakka og nota í sósur seinna.
Alvöru konur: Hvað er afgangs rauðvín?