Jááá
Kannist þið við það þegar maður á að vera að læra þá dettur manni í hug að gera ótrúlegustu hluti![]()
Nú á ég til dæmis að vera að læra undir tvö próf sem eru á morgun, og það frekar erfið próf..en það gengur ekkert.
Allt í einu finnst manni allir þættir sem eru í sjónvarpinu svakalega spennandi. Og það er alveg sama hvað það er. Manni meira að segja dettur í hug að ryksuga þótt maður hafi gert það í fyrradag
Jamm lærómurinn situr á hakanum.
Svo var ég að uppgötva það að það er bara mánuður í jólapróf. Ég væri sko ekkert á móti því að fá 20 daga í viðbót við það, en það er víst ekki hægt.. þannig að ég verð að fara að spýta í lófana og hætta þessu endalausa slóri..
En já það var vetrarfrí hjá mér síðustu helgi. En ég eyddi helginni í vinnu. Gott að fá smá pening![]()
Já efast um að nokkur nenni að lesa þetta.. BORING.. Guðný farðu að LÆRA!!!!!!!!!![]()
gangi þér vel, elsku frænka
Sirrý

