Það er að koma sumar
Já svei mér þá.. ég held að sumarið sé að koma
það er sko ekki leiðinlegt.. Það er orðið léttara að vakna á morgnana ekkert svo kalt. Svo er líka að styttast í helvítis vorprófin og þegar þau eru búin er allt skemmtilegt

Ég er allavegana búin að fá sumarvinnu.. ég verð á næturvöktum á esso.. og þar græðir maður alveg helling af money.. ég er líka svo mikill nátthrafn að þetta er ágætt fyrir mig.. Hún Ásdís er að spá í að vinna með mér.. og ekki er það nú amalegt
En já þann svo verð ég nú bráðum 20.. og þá má maður sko ALLT. Ég og Fúsi erum svona að spekúlera í að fara út til Danmerkur um leið og prófin eru búin hjá mér til að skoða okkur pínu um þarna úti, því við ætlum bæði í skóla í Odense.. og ég hlakka svo til.:)
Það er nú ekkert svo mikið að gerast í þessum blessaða skóla eins og er, það hægðist soldið á honum þegar miðannarmatið var búið.. en það kemur örugglega bráðum önnur sprengja í staðinn.
Hmmm.. hvað get ég sagt ykkur fleira.. JÁÁ.. þetta verður verður sko klikkuð helgi :D Pjöllubústaðurinn er um helgina.. og ég er nú aldeilis búin að bíða eftir þessari helgi.. Allir strákar bannaðir og það verður sko drukkið og djúsað.. Þetta er klikkuð hugmynd ;)
Jæja ég er þá farin að líta í námbækurnar, ætli maður skelli sér svo ekki bara upp í hesthús eða eh í góða veðrinu
Later
Bloggaðu kona! :P
