Jááá
Kannist þið við það þegar maður á að vera að læra þá dettur manni í hug að gera ótrúlegustu hluti![]()
Nú á ég til dæmis að vera að læra undir tvö próf sem eru á morgun, og það frekar erfið próf..en það gengur ekkert.
Allt í einu finnst manni allir þættir sem eru í sjónvarpinu svakalega spennandi. Og það er alveg sama hvað það er. Manni meira að segja dettur í hug að ryksuga þótt maður hafi gert það í fyrradag
Jamm lærómurinn situr á hakanum.
Svo var ég að uppgötva það að það er bara mánuður í jólapróf. Ég væri sko ekkert á móti því að fá 20 daga í viðbót við það, en það er víst ekki hægt.. þannig að ég verð að fara að spýta í lófana og hætta þessu endalausa slóri..
En já það var vetrarfrí hjá mér síðustu helgi. En ég eyddi helginni í vinnu. Gott að fá smá pening![]()
Já efast um að nokkur nenni að lesa þetta.. BORING.. Guðný farðu að LÆRA!!!!!!!!!![]()
Hahaha.. snilld :)
Þekkir þú fínar dömur og alvöru konur í sundur?
Fínar dömur: Ef þú hefur ofsaltað matinn sem þú ert að elda, þá skaltu setja kartöflu í pottinn. Hún dregur saltið í sig.
Alvöru konur: Ef þú ofsaltaðir matinn er það bara assgoti pirrandi.
Fínar dömur: Það er auðvelt að lækna höfuðverk með því að skera límónu í sundur og nudda henni á ennið.
Alvöru konur: Taktu límónu og blandaðu henni við tekíla og salt og drekktu. Höfuðverkurinn hverfur sennilega ekki, en þér verður alveg sama.
Fínar dömur: Ef þú setur sykurpúða í botninn á vöffluformi, þá lekur ísinn ekki í gegnum það.
Alvöru konur: Sjúgðu bara ísinn úr vöffluforminu. Þú liggur hvort eð er örugglega með fæturna upp í loft í sófanum og borðar hann.
Fínar dömur: Þú getur komið í veg fyrir að kartöflur spíri með því að setja epli í pokann með þeim.
Alvöru konur: Kauptu karföflumúspakka, hann geymist í heilt ár í eldhússkápnum.
Fínar dömur: Kökur fá jafna, slétta áferð ef þú penslar þær með eggjahvítu áður en þær fara í ofninn.
Alvöru konur: Betty Crocker segir ekkert til um penslun á kökunni. Slepptu þessu bara.
Fínar dömur: Ef þú átt erfitt með að opna sultukrukku er gott að setja á sig gúmmíhanska. Þannig færðu betra grip.
Alvöru konur: Biddu myndarlega, ríka og einhleypa nágrannann um að opna krukkuna!
Fínar dömur: Ekki hella afgangs rauðvíni. Það má frysta í ísmolabakka og nota í sósur seinna.
Alvöru konur: Hvað er afgangs rauðvín?
Jibbýýý
Mikið ofboðslega er ég ánægð!!!
Það eru að byrja spinningtímar aftur í styrk
Það er gaman….
En já fyrir ykkur sem ekki vissuð. Þá erum ég og Vigfús flogin úr hreiðrinu og byrjuð að búa. Þó það sé rosa gott að búa heima, þá er ennþá betra að vera út af fyrir sig.
Bara smá fréttir.. tútúlú
Ég er enn á lífi
Vildi bara láta að ég er ekki dáin
Ég er byrjuð að vinna og er alltaf á næturvöktum sem er mjög fínt. Við erum bara svona eitthvað að dunda okkur. Er samt í átaki sem er pínu erfitt þegar maður hefur lítið að gera og freistingarnar eru allt í kring.. hehe.. Bara að fá sér appelsínu ef maður er að deyja úr sykurþörf..
Jamm var líka í danmörku um daginn og langar að láta nokkrar myndir fylgja með..
Ásdís og Guðný
Argggg... Er hún eh. skrítin eða??
Ótrúlega fallegu bestu vinkonur mínar..
Mættar á djammið...
Það er svo gaman að vera svo sætar
En já bless í bili.. Er að fara á næturvakt..
kv. Guðný nátthrafn
DK á fimmtudag ..... jibbýýýý

Snilld sko.. Ásdís var að senda mér ferðatilhögun.. verð bara að skella henni inn
Get ekki beðið eftir að hitta Ásdísi. ekki skrítið kannski, við höfum alltaf hist á hverjum einasta degi eða oft á dag síðan við vorum núll ára
og soldið erfitt að lifa án hennar..En hér kemur bréfið :
Opið bréf til Guðnýjar Og Gerðar Sif
Ritað í Kaupmannahöfn 22.mai 2007
Dagarnir 24-27 mai 2007
Ferðaáætlun vegna Danmerkurferðar Guðnýjar og Gerðar
Núna munuð þið stöllur leggja land undir fót og halda á ykkar eigin vegum til stórborgarinnar Kaupmannahöfn nánar tiltekið í Danmörku. Það er enginn maður með mönnum né hann hafi farið í þessa fyrrum höfuðborg okkar Íslendinga og er því kominn tími til að þið skoðið ykkur um hér enda tvítugar stúlku kindur.
Annað en á Íslandinu góða þá er alltaf gott veður hér og sól, fólk hjólar leiða sinna eða tekur lest, drekkur bjór og rauðvín nánast daglega og síðan eru auðvitað allir svo ligeglad hér.
Á þessum þremur dögum sem þið munið dvelja hér mun ég gera mitt besta til að kynna ykkur fyrir borginni og sýna ykkur hvað þið eruð að fara á mis við með því að búa á Íslandi. Það helsta sem að við munum gera er auðvitað að knúsast vel og innilega, versla, taka lest, spóka okkur um í sólinni, þræða strikið og það sem það hefur upp á að bjóða, skoða í verslunarmiðstöðvar, fara í tivoli og prufa mögnuð tæki eins og fallturninn, róluna og rússíbanann, síðan munum við auðvitað sötra danskann bjór og þræða næturklúbbana sem eru nú ekki af verri endanum. Því miður eruð þið stúlkur báðar lofaðar en annars hefði ég nú líka kynnt ykkur fyrir dönsku piltunum sem eru í þokkabót súkkulaði sætir. Einnig munum við snæða kvöldverð með dönsku fjölskyldunni minn og fara út að borða á fínann veitingastað í miðbænum.
Gistingin er ekki af verri endanum en hún er í:
Silervej 3
2660 Bröndby Strand
En þar munuð þið gista í mínu forláta herbergi sem að staðsett er í kjallara þessa fallega húss. Þið hafið síðan afnot af baðaðstöðu hér á efstu hæð en mæli ég með því að þið tekið með ykkur handklæði og jafnvel sundfatnað ef að við gerumst svo kaldar að fara út á strönd (þó að sjórinn sé nú frekar kaldur ennþá) en það er nú alltaf gaman að hlaupa um í hvítum sandi.
Ég hef tekið saman lauslega það sem að verður á stefnuskránni og sett það á plan sem að við munum reyna að fylgja.
Fimmtudagurinn 24 mai
19:00 Borðaður kvöldmatur heima hjá ykkur og fjölskyldan formlega kvöd
20:00 Töskur yfirfarnar og ATH vel að ekki sé tekinn með of mikill farangur og að þið séuð báðar með það sem að ég hef beðið ykkur fyrir.
Gerður: Prótín
Guðný: Blöðkur á slendertone, föt sem þú færð send með pósti og það sem að mamma biður þig fyrir.
21:30 Lagt verður af stað frá Selfossi og eftir því sem ég best veit mun Fúsalingur keyra ykkur, vil ég vara ykkur við því að keyra of hratt því að við Guðný lenntum nú aldeilis í hremmingum á þessari leið fyrir 9 mánuðum síðan.
23:00 Mæting á Keflavíkurflugvöll og tékkað sig inn.
23:30 Spókað sig um í fríhöfninni og ef ég þekki ykkur rétt verður e-ð keypt í snyrtivörudeildinni. En þið meigið gjarnan kaupa nammi fyrir okkur til að borða á laugardaginn, því að nammið hér er ekki gott. Ekki nema að þið viljið hafa hollustuna í fyrirrúmi.
Föstudagurinn 25 mai
00:25 Leggið að stað að ykkar endastöð og farið inn í flugvél, við tekur síðan unaðslega skemmtileg ferð ykkar um loftin blá en áætlaður flugtími eru 3 klst.
06:00 Að dönskum staðartíma lendið þið á Kastrup flugvelli sem er já ansi stór og tekur langann tíma að ganga í gegnum hann þannig að verið á hlaupaskóm eða rænið ykkur gólfbíl sem eru gjarnan á sveimi þar. Á flugvellinum er best að fylgja bara hópnum eða þá elta skiltin sem á stendur ,,Arrival” skýrir sig soldið sjálft. Þá komið þið að lokum að töskubrettinu og getið þið búist við því að bíða í smá tíma eftir töskunum.
07:00 Ættuð þið að vera klárar í að labba frá brettinu og þá tekur við smá ganga, mjög stutt. Og komist þið fljótt í aðalanderið. Þar mæli ég með því að þið takið taxa á gististað. En því miður get ég ekki sótt ykkur vegna þess að ég þarf að sinna erindum mínum á heimilinu og undirbúa komu ykkar. Leygubílar eru venjulega í röðum fyrir utan flugstöðina og gott er að vera með heimilisfangið skrifað á miða því að leygubílarnir eru með gprs tæki í bílunum og skrifa inn í það heimilisfangið (ath það er ekki til ö í dönsku þannig að þau nota ø sem sagt Brøndby). Ferðin í leygubílnum ætti í mestalagi að taka korter og vonandi verið þið á ,,undan umferðinni” og þá ætti þetta að ganga hratt.
07:30 Koma í Silervej 3 og ég mun taka á móti ykkur með morgunverðarhlaðborði í boði hússins og auðvitað vil ég fá stórt og gott knús frá ykkur.
08:00 Farið niður í herbergi og ég sýni ykkur hvar þið eigið eftir að dvelja næstu tvær nætur.
08:10 Um þetta leiti ætti fjölskyldan að vera að koma sér út úr húsinu ýmist í vinnu eða leikskóla og mun ég því nýta tækifærið og taka ykkur í skoðunarferð um húsið.
08:30 Hér mæli ég með því að þið fáið ykkur smá blund enda dagurinn búinn að vera langur en samt bara rétt að koma morgunn, en á meðan ætla ég að skjótast í ræktina og klípa í Rassinn á honum Rasmusi eða ,,Rassamús” eins og ég kýs að kalla hann.
10:00 Ég kem heim og vek ykkur yndisfríðu stúlkur, og gerum við okkur reiðubúnar til þess að leggja í mikla ferð út í miðbæ. Við munum labba smá spöl út á lestarstöð. Þar munum við kaupa klippikort handa ykkur sem að nýtist ykkur síðan í þeim lestarferðum sem að við eigum eftir að fara í.
10:35 Um það leiti leggur lestin af stað frá Bröndby og tekur lestarferðin um 15 mín að komast á Hovedbanen en það er aðallestarstöðin staðsett á móti Tivoliinu. Einnig er möguleiki að stoppa á móti Fiskitorvet sem er fyrsta alvöru verslunarmiðstöðin hér í Köben. Þar er mjög gott að versla og stutt að labba út í miðbæ.
13:00 Setjumst við að snæðingi og dettur mér helst í hug að danskurskyndibiti verði fyrir valinu eða þá að við fáum okkur ekta danskt smørrebrød. Einnig væri tilvalið að sitja úti í góðaveðrinu og borða þar.
13:30 Heldur síðan geðveikin áfram og verður strikið þrætt búð til búðar enda veðurblíða úti. Farið verður í víðfrægarbúðir eins og H&M og fleira.
16:30 Hér verðum við orðið ansi þreyttar og kannski kominn tími til að fá sér smá vatnssopa og hvíla þreyttar lappir. Á þessum tímapunkti ættu allir að vera búnir að finna sér dress fyrir kvöldið.
17:15 Komum við okkur á Hovedbanen og tökum þaðan fyrstu lest, A eða A+ aftur heim í Bröndby.
17:40 Áætluð heimkoma og tími til kominn að þrífa sig og gera sig fínann.
19:00 Kvöldmatur að hætti hússins.
19:55 Komum við okkur síðan aftur út bæ með lestinni.
20:15 Leggjum við leið okkar í tivoliið og förum í eins og nokkur tæki þar og sá um okkur nokkra kalda. Oftar en ekki eru ýmsar uppákomur þar á kvöldin og kemur í ljós hvað verður þetta kvöld.
23:30 Er áætlað að við komum okkur úr tivoliinu og verðum við þá komnar aðeins í glas, þá er um að setjast inn á krá og sötra nokkra kæmpeøl.
Laugardagurinn 26 mai
00:30 Þá förum við á pöbbarölt, kíkt verður á heitustu staði Kaupmannahafnar og blandað geði við mannskapinn. Og umfram allt haft gaman eins og okkur einum er lagið. Spjallað, dansað, drukkið, spjallað, dansað og drukkið meira.
05:00 Hér verður alveg kominn tími til að fá sér eins og eina danska pulsu eða ef þið heldur kjósið sest inn á mcdonalds og fengið sér borgara, þar mæli ég sérstaklega með mcflurry.
05:25 Tökum við lestina aftur heim og leggjumst til hvílu enda verðið þið stöllur orðnar dauðþreyttar og langur dagur framundan.
10:30 Verða allir ræstir upp, fengið sér smá íbúfen og vatn og gert sig tilbúinn fyrir daginn og farið í sturtu ef þarf.
11:00 Borðaður síðbúinn morgunverður eða snemmbúinn hádegisverður.
11:30 Komum við okkur aftur út í bæ og höldum áfram að gera það sem að við gerum best þ.e að versla. Hér væri t.d tilvalið að fara í Field´s sem er að mér sagt stæðsta verlunarmiðstöð N-Evrópu eða allavega norðurlandanna.
15:00 Setjumst við síðan upp á efstu hæðina og fáum okkur að snæða.
15:30 Höldum við áfram að versla og ath að nú er hvert augnablik dýrmætt því að búðirnar eru lokaðar á sunnudögum.
18:00 Komum við okkur síðan aftur heim í Bröndby gerum okkur fínar fyrir kvöldverð.
19:00 leggjum við af stað út í bæ.
20:00 Borðum á einhverjum fínum stað í miðbænum, situm lengi þar og sötrum á eins og einum eða tveim kæmpeøl.
22:00 Færum við okkur síðan yfir á krá eða kaffihús og sitjum þar í rólegheitunum.
Sunnudagurinn 27 mai
00:30 Nú er kominn tími á það að koma sér aftur út á skemmtistaðina.
En eins og áður sagði verðum við búnar að rannsaka bæinn kvöldið áður þannig að við ættum að vita hvar heitustu staðirnir eru.
05:30 Hér skulum við fara að huga að því að koma okkur heim enda kominn dagur úti og venjulegir danir að huga að því að vakna, fá sér smørrebrød og fara út að skokka.
05:45 Fáum okkur að borða og eins og áður er það frálst val hvað hver og einn velur.
06:05 Komum við okkur heim með lestinni.
06:30 Leggjumst við til hvílu enda eflaust útkeyrðar eftir amstur dagsins.
11:30 Komum við okkur á fætur sérstaklega ef að það er gott veður því að þá skulum við sko aldeilis baða okkur í sólinni, annars væri líka hægt að fara í tivoliið í Bakken en þangað er hægt að fara með lest, og á það að vera ansi skemmtilegt tivoli þó að það sé heldur eldra en tivolið í miðbænum.
17:00 Nú er komið að því ómögulega en það er að koma öllu því sem að verslað hefur verið á þessum tveimur dögum fyrir í ferðatöskuna, en ég veit það að eigin raun að það getur verið mjög vandasamt verk.
17:30 Verðið þið síðan keyrðar út á flugvöll og taka þar við endalaus tár og himinhár grátur. Þar tékkið þið ykkur síðan inn og krossleggið fingur um það að þið séuð ekki með yfirvikt. Munuð bara að tékka ykkur inn hjá karlmanni og ef hann ætlar e-ð að segja þá brosið þið bara breitt og sýnið skoruna.
18:00 Ef að þið hafið verið skynsamar hafið þið sem íslendingar verslað allt tax free, en það virkar þannig að ef þið kaupið e-ð í sömu búðinni fyrir meira en 139 dkr (að ég held) þá getið þið beðið um að fá sérstaka nótu. Ekki mikið mál þannig séð þó að þetta taka smá extra tíma. En meiningin með þessu er að á flugvellinum getið þið farið með þessar nótur og fengið endurgreitt fullt af pening eða allavega 10% af því sem þið hafið eytt. Í mínu tilfelli þegar ég kom hingað í október var þetta meira en 10þúsund og það munar nú alveg um það. Þið getið síðan valið um það hvort að þið viljið fá þetta í dönskum krónum og eytt þessu á flugvellinum eða þá fengið þetta í íslenskum og notað þetta þegar heim er komið.
19:25 er síðan kominn tími á það að þið komið ykkur að rétta útganginum.
19:45 Lagt af stað frá Kastrup flugvelli, með fullartöskur af fötum, skælbrosandi yfir skemmtilegri helgi og fullar eftirvæntingar yfir því að hitta mig aftur eftir innan við mánuð. Enda veður það að viðurkennast að það er hálf leiðinlegt til lengdar að hafa mig ekki innan seilingar.
20:45 Ef mér skjátlast ekki lendið þið síðan í Keflavík og úti verður grenjandi rigning og allt ómögulegt og þið óskið þess helst að geta bara tekið næstu flugvél aftur til mín. Ef þið lendið í því örvæntið ekki því að næsta flugvél flýgur til Kastrup kl 22:30. En ég á þá eftir að bíða spennt eftir ykkur.
Eftir þessa ferð ættuð þið að vera orðið mikið menningarlegri enda búnar að sjá heila nýja borg og kynnast vonandi fullt af nýju fólki.
Umfram allt vona ég að þið eigið góða ferð og skemmtið ykkur vel. Annars verð ég allavega illa svekt.
Með kveðju ykkar besta vinkona
_______________
Ásdís Elvarsdóttir
Ps: elska ykkur rúsínupungarnir mínir og hlakka
óendalega mikið til að fá ykkur hingað til mín.
Vonandi verður þetta ferð sem að við eigum
eftir að tala um á elliheimilinu þegar að við erum
orðnara gamlar og gráhærðar og minnast þess hvað
það var nú gaman að koma til köben til mín og hvað
við skemmtum okkur endalaust vel og einnig
að það væri nú gaman að endurtaka leikinn.
Enda efast ég nú ekki um að þetta sé síðasta ferðin
Okkar þriggja í útlöndum þær verða sko
Mikið, mikið mikið fleiri.
<3 love you girls<3
Ég á líka afmæli.. nanananabúbú ;)
Nú er ég loksins orðin tvítug.. svaka munur ha?
Nú get ÉG farið í ríkið og kemst inn á alla skemmtistaðina.. kannski fyrir utan goldfinger og eitthvað álíka.. Ég hélt settlegt kökuboð áðan fyrir familíuna mömmu, pabba, Fúsa, Gísla, Gissur, Katrínu, Kristey Egis og svo Gerði líka.. Enginn smá myndarskapur á minni
Samt svona frekar asnalegt að hafa enga Ásdísi til að knúsa... Eeeen ég knúsa hana bara á föstudaginn í staðinn.. ![]()
Kökurnar mínar voru kannski alveg svona flottar..
Ekkert smá æðislegur dagurinn í gær.. ég er svo dekruð.. Fúsi fór með mig í smá óvissuferð til Reykjavíkur.. Hann byrjaði á því að fara með mig í dekur á Nordica spa.. og það var svo gott.. Ég fór semsagt í laaangt nudd, það besta í heimi sko, alveg allur líkaminn nuddaður og þvílík slökun
Svo þegar það var búið fór í andlitsbað sem var alveg æðislegt.. þer af leiðandi er húðin mín eins mjúk og ber barnsrass.. hehehe... Þetta er sko ekki búið
Við fórum síðan á Argentínu að borða og það var geðveikt gott.. fengum klikkaða humarsúpu, nautasteik og svo auðvitað afmælisdesert í boði hússins..
Næst gerðumst við soldið menningarleg og skelltum okkur í leikhús á Leg og ég mæli sko með því ![]()
Eftir leikhúsferðina fórum við í afmæli til Einars bróður Fúsa sem varð fertugur í maí líka, þannig að hann er akkúrat helmingi eldri en ég.. hehe Næsta afmæli sem við fórum í þetta kvöld var hjá elsku Sunnu. Þannig að við brunuðum í hveragerði í afmæli.. það var ekkert smá gaman![]()
OOooo já ég var að eignast litla sæta frænku núna 20. apríl. og Sirrý og Haraldur daði komu í heimsókn með hana núna áðan.. ég fékk meira að segja að prufa.. svo mikið lítil og sæt.. Kristey var bara næstum risi miðað við hana.. hehe kannski ekki alveg..
Ætla að láta eina mynd fylgja af Katrínu systu og Kristey![]()

Later fólks
Kveðja Guðný afmælisbarn
3 próf af 6 búin
Þá eru prófin hálfnuð hjá mér.. Ömurlegt að þurfa að sitja inni í góða veðrinu dag eftir dag og læra
Ég á eftir að taka próf í sögu, þýsku og dönsku...
En það verður líka allt svo gaman eftir prófin, eitthvað sem maður getur sko hlakkað til
Síðan er auðvitað danmerkurferðin ógurlega að nálgast líka.. en ég var búin að segja ykkur frá henni..
Elsku Katrín og Kristey komu í heimsókn í gær og það er alltaf svo gaman að hitta þær
Hmm.. Fúsi laghenti var að laga hjólið mitt í gær þannig að ég get farið að hjóla um götur selfossbæjar, og er meira að segja að hugsa um að gera það núna
Heyrumst síðar.. bæbæ
Blogggggg
Jæja lömbin mín
Helgin er afstaðin og raularinn líka.. Ekkert smávegis gaman
Við pæjurnar tókum lagið æði og það var ekkert smá flott hjá okkur þrátt fyrir nokkra ölvun
Ástæðan fyrir því að ég er að blogga núna loksins er vegna þess að ég á að vera að læra undir próf sem er í fyrramálið.. ég á semsagt eftir að fara í 6 próf, þannig að það er alveg nóg að gera..
Já Ásdís litla er stungin af til danmerkur.. En ég þarf ekki að sakna hennar allt of lengi því við Gerður ætlum að leggja land undir fót og heimsækja hana, og auðvitað versla í leiðinni.. Og það er risa HM búð
JIBBÝ..
En hey ég má ekki vera að þessu...
Síjú leiter alígeiter
hehe




Það er að koma sumar
Já svei mér þá.. ég held að sumarið sé að koma
það er sko ekki leiðinlegt.. Það er orðið léttara að vakna á morgnana ekkert svo kalt. Svo er líka að styttast í helvítis vorprófin og þegar þau eru búin er allt skemmtilegt

Ég er allavegana búin að fá sumarvinnu.. ég verð á næturvöktum á esso.. og þar græðir maður alveg helling af money.. ég er líka svo mikill nátthrafn að þetta er ágætt fyrir mig.. Hún Ásdís er að spá í að vinna með mér.. og ekki er það nú amalegt
En já þann svo verð ég nú bráðum 20.. og þá má maður sko ALLT. Ég og Fúsi erum svona að spekúlera í að fara út til Danmerkur um leið og prófin eru búin hjá mér til að skoða okkur pínu um þarna úti, því við ætlum bæði í skóla í Odense.. og ég hlakka svo til.:)
Það er nú ekkert svo mikið að gerast í þessum blessaða skóla eins og er, það hægðist soldið á honum þegar miðannarmatið var búið.. en það kemur örugglega bráðum önnur sprengja í staðinn.
Hmmm.. hvað get ég sagt ykkur fleira.. JÁÁ.. þetta verður verður sko klikkuð helgi :D Pjöllubústaðurinn er um helgina.. og ég er nú aldeilis búin að bíða eftir þessari helgi.. Allir strákar bannaðir og það verður sko drukkið og djúsað.. Þetta er klikkuð hugmynd ;)
Jæja ég er þá farin að líta í námbækurnar, ætli maður skelli sér svo ekki bara upp í hesthús eða eh í góða veðrinu
Later
Velkomin á bloggið mitt kæru aðdáendur
Kveðja Guðný ofursvala

